Verkefni
Arnar Björn Björnsson, einn stofnenda exa nordic, vann að samkeppnistillögunni með arkitektateymum sastudio og Huldajons. Í dómnefndaráliti framkemur:
“Miðbæjarleikskólinn Snorraborg er falleg bygging sem fellur vel að staðarandanum. Bygging og umhverfi bjóða upp á fjölmargar og jákvæðar upplifanir. Heimasvæðin bjóða upp á frábæra nýtingu á setsvæðum í gluggum. Mjög góðar hugmyndir eru varðandi húsgögn og innréttingar í innirýmum. Fjölnotasalur tengist stiga sem fellur að rýminu og býður upp á að börnin setjist niður og njóti umhverfisins. Stiginn hvetur til leiks og samveru. Lóðin litrík og býður upp á marga leikmöguleika, rýmismyndunin er spennandi. Tillagan sýnir mjög góðan skilning og næmni á viðfangsefninu og fellur alveg sérstaklega vel að umhverfinu.”