Tillaga um nýja brú yfir Fossvog í samkeppni á vegum Vegagerðarinnar, sveitarfélaga Reykjavíkur og Kópavogsbæjar ásamt Betri samgöngum ohf. Tillagan hafnaði í 4. sæti af 15 innsendum tillögum.
Brú yfir Fossvog er hluti af 1. áfanga uppbyggingar vegna Borgarlínu samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins til 15 ára sem undirritaður var í september 2019.